Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Chamonix

Kominn til Chamonix og ár númer fjögur þar sem hitinn er nálægt 30 gráðum  Ekki kannski óska hlaupaveðrið en fínt samt sem áður.   Hugsanlega einhver rigning næstu nótt en annars á veðrið að vera til friðst. 

Er í ágætisstandi og allur að detta í gírinn. 

Blog ferðarinnar má finna hér:  UTMB2009


Stuð

Er kominn í heljar stuð fyrir Mont Blanc hlaupið, líður vel og engin meiðsl að angra mig eins og síðustu tvö ár. 

Ætla að reyna að setja hlaupið upp þannig að sem minnstur tími fari í drykkjarstöðvarnar en þar treysti ég á að veðrið verði okkur Íslendingunum hliðhollara.   Frétti í gær að það væri klassískar 28 gráður og það er bara ekki hægt að hlaupa þegar veður er þannig.  Sólin er svo sterk upp í fjöllunum að maður vill ekki fara út undir bert loft.   Hef þó stundað sánuna grimmt og spurning hvort það skili sér.

Veðurspáin hefur þó heldur verið að breytast okkur Íslendingunum í hag og útlit fyrir skýjað og 15 gráður eða svo.  

Geggjað!

 

P.s. síðustu fregnir herma að það séu nú þegar 28. gráður í Chamonix.  Vonandi að spáin haldi.


82,6 kg

Kílóin hafa hrunið af mér síðustu dagana en upphafið að því má rekja til þess að ég hætti að drekka kók 27. júlí.  Síðan eru farin 5 kg á 26 dögum. 

Síðan breytti ég aðeins þjálfuninni, fór meira í spretti og tempó æfingar sem hafa aukið brennsluna umfram klassískt langt og rólegt.  Magnið hefir ekki verið mikið ca. 50 km hlaup og 50 km hjól á viku.

Þannig  að það verður gaman að sjá hvernig gengur um næsu helgi en ég verð ca. 5 kg léttari, munar um það.  Aldrei að vita nema vigtin sýni 7x.xx eftir helgina en ég hef vigtað léttastur síðan ég byrjaði að hlaupa 80.9 kg en það var í júní 2003.

 

 


Jæja

Er að verða klár fyrir UTMB.  Hásinin verður orðin góð, mar og verkur farin, aðeins smá eymsli í sárinu en nóg að setja plástur yfir.   Þannig að þetta verður amk ekki afsökun!

Hef stundað gufuböð eftir ræktina til að athuga hvort hitaþolið aukist en þetta hef ég gert nú í heilan mánuð.  

Vigtin hefur heldur gefið sig þótt dagsveiflurnar séu enn frekar miklar.  En reikna með að þegar ég verð kominn vel inn í hlaupið ætti vigtin að vera kannski 5 kg minni en í fyrra. 

Hef ekki snert kók í mánuð, það hjálpaði mikið til.

 

 


Allur að koma til

Búinn að fara til sjúkraþjálfara hér í Noregi og kunna þeir alveg sitt fag (amk ef sársauki er mælikvarði á færni).  Hef fengið nálastungur tvisvar og í bæði skipting er straumi hleypt á með svo nálarnar ganga upp og niður að manni finnst (eins og orginalinn sé ekki nógu vondur.....)

En hef sagt getað hlaupið núna án verkja í hásininni sjálfri, sárið að gróa og allt að fara í rétta átt.  

20 km í dag án vandræða.  Tek nokkur hlaup út vikuna áður en ég fer að róa mig niður fyri UTMB.

 


Hásin

Nú er rúm vika síðan ég rétt náði að bjarga mér frá falli á hjólinu og um leið bjarga því að lenda fyrir stífbónuðum BMW!

Það tók sinn toll því þegar ég setti lappirnar niður þá fékk ég pedalana á fullu krafti aftan á hásinarnar og þar sem þeir eru prýddir göddum til að gera þá stamari þá urðu verulegir eftirmálar af þessu "slysi".   Hásinameiðsl eru ekki beint á óskalista hlauparans, sérstaklega ekki þegar hann er að fara keppa eftr 4 vikur.  

Fór á brettið í dag og prófaði dæmið og virtist allt vera í nokkuð góðu standi svo ég rúllaði 15 km.  Sár eru þó ennþá sjáanleg þrátt fyrir að rúm vika sé síðan að þetta gerðist.

Í fyrstu var þetta í lagið og ég gat hlaupið með því að setja plástur á neðra sárið en þegar marið fór að koma (mest á milli sáranna) þá varð ég að hætta öllum hlaupum enda þrýsti hælkappinn reglulega á sárið.

 En nú er bara að skokka rólega næstu daga áður en ég tek vikufrí eða svo fyrir hlaupið úti.

Hásin

 

 


Aftur af stað

Eftir rólega daga fyrir og eftir Jökulsárhlaupið er ég að fara að keyra upp magnið aftur næstu þrjár vikurnar.    Er líka að taka nokkrar æfingar á fætur og maga til að styrkja mig betur fyrir hlaupið í lok ágúst.    Svo er líka sánan óspart notuð og ætla ég að athuga hvort ég finn einhvern mun á mér í hlaupinu með þann undirbúning að baki.   Hitinn hefur verið rétt um 30°C á daginn sem fær hvaða hlaupara  í maraþoni til að bráðna, jafnvel strax um miðbik hlaupsins. 

Að byrja í bakaraofni kl: 08:00 að morgni og vera í honum frameftir degi er því ekkert grín og ef það tekst að venjast hitanum að einhverju leiti þá er það bara hið besta mál.

 


Höfundur

Börkur Árnason
Börkur Árnason

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband