Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Svamp skór

Sá hlaupara í UTMB hlaupinu í fyrra á bláum furðuskóm og gat bara vorkennt honum þar sem þeir litu út fyrir að vera gerðir fyrir allt annað en fjallahlaup.

Nú er einn af þeim bestu 100 mílna hlaupurunum búinn að fleygja La Sportiva skónum fyrir þessa skó og ætlar að mæta í UTMB hlaupið í haust í þeim.  

Einhver hefði kallað þessa skó stafgönguskó :)

Hokaoneone

Hlaup í dag: 10 km (var eitthvað illa fyrirkallaður og á km 9.78 missti ég allann áhuga á frekari hlaupum þennan daginn).  Langar samt aftur út núna.......


Danskur Laugavegur og fleira

Um síðustu helgi var Hammer Trail 50 miles haldið á Bornholm í Danmörku. Rakst á 20 mínútna þátt hjá TV2 um hlaupið og ekki hægt að segja annað en að vel hafi tekist til hjá dönunum og leiðin að mörgu leiti skemmtileg.  Spurning um að leggjast í víking að ári!

Frásögnin byrjar á mín 5:30, ath að tvíklikka til að fá stærri skjá (er á fredag 30. apríl)

Hammer trail myndband

Þýska blaðiðTrail magazin er eitt af þeim betri, mikið um skó og fatnað auk frásagna af hlaupum.  Maður verður að rifja upp menntaskólaþýskuna til að geta lesið það en það hefst.

Trail magazin

 

(ATH að fletta í gegnum Archive-ið hægra megin en þar eru eldri útgáfur)

Trail magazin er einnig með test á utanvegarskóm

Utanvegaskór

 

Svo er það þreytti maðurinn á blaðsíðu 16

Þýsk frásögn af UTMB

 

 

 


Höfundur

Börkur Árnason
Börkur Árnason

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband