Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Jökulsárhlaupið


Undirbjó mig ekkert sérstaklega þar sem ég komst aldrei í neinn karbólód gír eins og ég ætlaði.  Drakk því bara aðeins af orkudrykk fyrir hlaupið og ætlaði bara að hlaupa á þeirri orku sem var til staðar eftir nokkrar ferðir út að borða í RVK vikuna á undan ásamt 5 gelum. 

Ætlaði að byrja rólega og tókst það nokkurn veginn, var ekkert stressaður þó ég sæi fremstu menn hverfa á undan mér.   Gekk þokkalega fyrstu 4 km og allt á plani þegar ég lenti í tómu rugli.  Öll orka hvarf og þar með löngunin til að klára þetta hlaup.  Skakklappaðist þó áfram á þokkalegum hraða en var farinn að sjá að ég færi í besta falli bara niður í Hólmatungur og ekki meter meir. 

Ákvað svo að gera eitthvað í mínum málum á km 8 og steig út fyrir brautina og fékk mér gel og vatn í rólegheitum meðan nokkrir þustu hjá.   Var lítið skárri og  var því nánast búin að ákveða að hætta í Hólmatungum.  Fæ mér vatn og í því mætir félagi Ævar á staðinn og í stað eymdar ákvað ég að rúlla með honum.    Stuttu síðar finn ég hvar orkustigið vex hratt og fljótlega ligg ég rétt yfir 4 mín tempó.  Eins og ávallt er ég í baráttunni við Ívar og Ingólf og því markið sett að nýta þessa nýfengnu orku til að elta þá uppi en þeir höfðu ca. 2 mín forskot á mig.  Hljóp svo eins og druslan dró næstu km og hljóp nokkra hlaupara uppi sem höfðu farið fram út mér.  Náði tvíeykinu ásamt félaga Halldóri stuttu fyrir Vesturdal og fann þá orkuna vera farna að dvína aðeins.  Fékk mér annað gel en það gerði lítið nema að halda í horfinu.  Ákvað því að rúlla þægilega niður að næstu drykkjarstöð og keyra frekar á síðustu km ef ég fengi auka orku í restina. 

Rúllaði svo fínt niður með brúninni og dró jafnt og þétt á Ívar og Ingólf og einn til (Viðar Braga).  Sá að ég var hraðari í ójöfnunum svo ég var alveg rólegur og nokkuð viss um að ná þeim í restina.  Þegar nær dróg "skóginum" í lokin keyrði ég upp hraðann og náði þessum þremur og er að gera mig tilbúin til að fara fram úr við næsta tækifæri þegar Ingólfur steinliggur fyrir framan mig og þar sem ég ætla að stinga mér framúr meðan hann er í einhverri Matrix stellingu og við það að lenda þá flýg ég að sjálfsögðu líka á hausinn. 

(Hér vildi ég að sagan hefði verið á þann veg að Ingólfur hefði sparkað mig niður en eftir kröftug mótmæli frá þá lét ég undan, sagan hefði þó óneytanlega verið betri þannig!) 

Ég var varla lentur þegar ég fékk þessa líku svakafínu krampa aftan í lærin og var alveg stopp við að ná þeim úr mér í ca. 2 mín.   Þar með missti ég af möguleikunum á topp tíu.

Tíminn svona la la, hefði átt að liggja nær 2:40 á góðum degi en í heildina bara sáttur með að hafa náð að rífa mig upp eftir Hólmatungur og hlaupa dúndurgott hlaup það sem eftir var. 

Laugavegurinn er að líkindum off....!

Er nokkurn veginn búinn að slaufa Laugaveginum þetta árið en loka ákvörðun verður tekin á föstudag.   Bæði vegna þess að læknirinn ráðlagði mér að slaka á og svo er UTMB framundan og ég er svona rétt að jafna mig eftir WS100 og Laugavegurinn mun bara lengja recovery tímann.  Ætla í staðinn að skokka Jökulsárhlaupið.  Reikna samt með að kíkja í Þórsmörkina og hlaupa á móti og hvetja fólk síðustu km.

Höfundur

Börkur Árnason
Börkur Árnason

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband